Upplýsingatækni og skólastarf

þriðjudagur, desember 28, 2004

Bara ad prufa.

Örbloggfærslu sendi hilmar
Sent með GSMbloggi Og Vodafone
  • Skilaboð
  • föstudagur, nóvember 28, 2003

    Paintball! 

    Ég skellti mér í Paintball með nemendum mínum í 10. - H í dag. Undirbúningur hafði staðið yfir í viku - fyrst ætluðum við að skoða draugasafnið á Stokkseyri, en vegna takmarkaðs opnunartíma (helgaropnun) urðum við að hætta við draugaskoðunina.

    Í stuttu máli skemmtu allir sér konunglega í Paintball. Leikurinn er í sjálfu sér einfaldur - drepa eða vera drepinn. Skipt var í tvö lið og mitt lið vann (að sjálfsögðu) glæstan sigur 6,5 vinningur gegn 1,5. Stelpurnar voru engir eftirbátar í skotfiminni.

    Paintball gengur út á mikla hreyfingu, útiveru, herkænsku og úthald. Paintball gengur líka út á samheldni og traust. Ég hvet alla kennara til að líta upp úr skólabókunum og skella sér í Painball með nemendum!
  • Skilaboð
  • miðvikudagur, nóvember 26, 2003

    Foreldrafundur 

    Það merkilega er að kennarar eru ekkert ólíkir öðrum foreldrum. Þeir þurfa m.a. að fara á foreldrafundi, taka þátt í foreldrarölti o.sv.frv. Kennari, sem á barn á skólaskyldualdri, ætti því að geta metið kerfið innan- og utanfrá.

    Það hlýtur að teljast undarlegt þegar heilum bekk er vísað úr tíma í einu vegna óláta (8. bekkur). Og þeim mun undarlegra þegar síðan er ákveðið að nemendur fá ekki sérstaka skráningu í Stundvísi, þ.e. opinberlega er málið látið niður falla.

    Hvað stendur þá eftir? Kennari missir stjórn á bekk og hefur þau ein ráð að vísa öllum nemendum úr tíma. Viðkomandi kennari fer til skólastjóra og þar er sæst á að láta málið niður falla - án þess að refsa nemendum!
  • Skilaboð
  • laugardagur, nóvember 22, 2003

    Ókeypis orðabók! 

    Núna er ég búinn að setja upp ókeypis ensk-enska orðabók á blogginu. Hér til hliðar á síðunni getur þú slegið inn leitarorði (á ensku) og smellt á "Leita". Þá færðu upp síðu með ítarlegum orðskýringum.

    Þessi þjónusta er ókeypis í boði Merriam-Webster. Það er einfalt og þægilegt að sækja html kóðann á heimasíðu þeirra og líma inn í "Template".
  • Skilaboð
  • fimmtudagur, nóvember 20, 2003

    (Þokkalega)stoltur kennari 

    Nemendur mínir í 9. og 10. bekk eru á fullri ferð í blogginu. Það er með töluverðu stolti sem ég bendi ykkur á að kíkja á bloggið hennar Dagnýjar og ekki er bloggið hennar Sonju síðra.

    Eftir því sem nemendur kynnast html forritun betur verða þeir æfðari í breytingum og viðbótum á blogginu. Næsta skrefið er svo að láta þá vinna heimasíður í FrontPage.
  • Skilaboð
  • þriðjudagur, nóvember 18, 2003

    Snertitafla á 35.000? 

    Vil benda ykkur á að Nýherji er að selja Mimio töflubúnað á 35.000.

    Þetta er að sönnu ekki nýjasta úgáfa af búnaðinum, heldur eldri, serial útgáfa. Nýja útgáfan hefur usb tengingu en kostar líka 80.000 (og þykir reyndar ekki mikið).

    Þessi búnaður er settur á venjulega tússtöflu og tengdur við tölvu. Með því að nota skjávarpa er kennarinn kominn með fína snertitöflu (sjá SMART-board).

    Sameinumst um að útrýma gömlu krítartöflunum!

  • Skilaboð
  • sunnudagur, nóvember 16, 2003

    Powered by audblogaudio post powered by audblog
  • Skilaboð
  • Vefútgáfa í grunnskólum? 

    Rakst á stórskemmtilegt - og fróðlegt - íslenskt blogg á vefnum í morgun. Már Örlygsson býður upp á athyglisverðar hugleiðingar, m.a. um vefútgáfu í grunnskólum.

    Már spyr: "Getur einhver sagt mér hvort einhverjir íslenskir grunnskólar nota vefdagbækur (blogg) til að virkja krakkana í heimanáminu?

    Kann einhver góðar sögur af kennurum sem hafa þorað að sleppa "stjórninni" af krökkunum og gefið þeim frelsi til að fikta og læra á þessum vettvangi (eða svipðum)?"
  • Skilaboð

  • This page is powered by Blogger. Isn't yours?